Drög að reglugerð

Drög að reglugerð umframhaldsfræðslu

Drög að reglugerð um framhaldsfræðslu hafa verið undirbúin á grundvelli ákvæða laga nr. 27/2010. Fjórir vinnuhópar skipaðir starfsfólki mennta- og menningarmálaráðuneytisins og sérfræðingum utan ráðuneytis unnu að undirbúningi reglugerðarinnar síðari hluta árs 2010 og voru meginniðurstöður þeirra kynntar og ræddar á ráðstefnu ráðuneytisins um innleiðingu laga um framhaldsfræðslu 19. nóvember 2010. Starfsmenn ráðuneytisins hafa síðan dregið efni starfshópanna sama í heildstæð reglugerðardrög sem voru kynnt og rædd í vinnuhópum á samráðsfundi ráðuneytisins og fræðsluaðila í framhaldsfræðslu 24. mars 2011.

  • Ráðuneytið telur mikilvægt að fá viðbrögð hagsmunaaðila við þessum drögum áður en gengið verður frá þeim til útgáfu.
  • Unnt er að senda inn athugasemdir og umsagnir á netfangið postur@mrn.is
  • Frestur til að skila inn athugasemdum og umsögnum er til 1. júlí 2011. Stefnt er að því að gefa reglugeð um framhaldsfræðslu haustið 2011.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica