Mat og úttektir leikskóla
Í reglugerð um starfsemi leikskólanr. 225/1995 segir að sérhver leikskóli skuli móta aðferðir til að meta uppeldisstarf, stjórnunarhætti og samskipti bæði innan leikskólans og utan. Mat skal gert með hliðsjón af lögum, reglugerð og aðalnámskrá leikskóla. Sérstaklega skal gera grein fyrir framkvæmd og niðurstöðum matsins.
Mati á leikskólastarfi er skipt í innra og ytra mat. Með innra mati er átt við sjálfsmat leikskólans og skal það framkvæmt af starfsmönnum hans, en menntamálaráðuneytið hefur sett fram viðmið fyrir sjálfsmat. Með ytra mati er átt við úttekt á starfsemi leikskólans sem gerð er af utanaðkomandi aðila.
