Aðalnámskrá leikskóla - drög
Leikskólar
Drög að nýrri aðalnámskrá leikskóla er nú til kynningar á vefsvæði þessu. Námskrárdrögin eru unnin með hliðsjón af ákvæðum laga nr. 90/2008. Í aðalnámskrá leikskóla er að finna nánari útfærslu á ákvæðum laga og reglugerða um nám og kennslu í leikskóla. Fjallað er meðal annars um leikskólastarfið, námsumhverfi, vellíðan barna, samskipti við fjölskyldu og næsta skólastig, skólanámskrá, starfsáætlun og mat á leikskólastarfi.
Hér eru einnig birt til umsagnar drög að sameiginlegum inngangskafla fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Þar er fjallað um hlutverk aðalnámskrár, almenna menntun og gæðaeftirlit.
Námskrárdrögin og inngangskaflinn verða til kynningar á vefsvæði þessu til 20. desember 2010. Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda athugasemdir og ábendingar um námskrárdrögin og inngangskaflann í heild eða einstaka þætti þeirra til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið namskra@mrn.is.
Að loknu umsagnarferlinu verður unnið úr innsendum ábendingum og athugasemdum. Stefnt er að því að gefa út nýjan almennan hluta aðalnámskrár leikskóla í byrjun árs 2011.
