Ný rit
Staða lestrarkennslu í íslenskum grunnskólum [Eingöngu á rafrænu formi]
Í skýrslu þessari sem unnin er af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir menntamálaráðuneytið er leitast við að draga fram afstöðu ýmissa aðila sem koma að lestrarkennslu í grunnskólum, til stöðu hennar og eigin starfa innan fagsins. Þannig nýtist sú þekking á málaflokknum á sem bestan hátt.
Skýrslan er farvegur fyrir skoðanir og mat kennara, skólastjóra, sérfræðinga innan tveggja íslenskra háskóla og kennaranema á stöðu lestrarkennslu í grunnskólum.
