Ný rit

Skýrsla námsgagnasjóðs 2008-2009

15.9.2009

Lög um námsgögn voru samþykkt á Alþingi 28. mars 2007. Markmið laganna var að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla. Lögin kveða á um stofnun námsgagnasjóðs og þróunarsjóðs námsgagna, auk þess að fjalla um Námsgagnastofnun.

Námsgagnasjóður hefur það hlutverk að leggja grunnskólum til viðbótarfé til námsgagnakaupa í því augnamiði að tryggja val þeirra um námsgögn. Með tilkomu sjóðsins hafa skólastjórnendur nú aukið svigrúm til námsgagnakaupa til viðbótar við úrval Námsgagnastofnunar.



 

Aðgengismál

Ýmsar eldri PDF-skrár sem eru á vef menntaamálaráðuneytis eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Vinsamlegast hafið samband við ráðuneytið (postur@mrn.stjr.is) ef PDF-skrá er ekki aðgengileg og leitast verður við að finna viðunandi lausn.