Ný rit
Úttekt á Fótaaðgerðaskóla Íslands : unnin fyrir menntamálaráðuneytið [Eingöngu á rafrænu formi] (2009)
Fótaaðgerðaskóli Íslands er einkaskóli á framhaldsskólastigi og er til húsa að Hjallabrekku 1 í Kópavogi. Skólinn er sá eini á landinu sem kennir fótaaðgerðafræði. Fyrstu nemendur skólans hófu nám í janúar 2008 og voru þeir útskrifaðir í desember sama ár. Námið tekur nú 14 mánuði og skiptist í bóklegt og verklegt nám. Að loknu námi í Fótaaðgerðaskóla Íslands öðlast nemendur löggildingu hér á landi til að kalla sig fótaaðgerðafræðing að fenginni umsögn landlæknis og Félags íslenskra fótaaðgerðafræðinga.
