Erlent samstarf

Tungumálamiðstöðin í Graz

European Centre for Modern Languages (ECML)




Merki ECML

Ísland gerðist aðili að Tungumálamiðstöðinni í Graz (ECML) hinn 1. janúar 1998 og er eitt 33 aðildarlanda. Tungumálamiðstöðin er stofnun á vegum Evrópuráðsins og starfar á grundvelli sérstaks samkomulags við það. Miðstöðin var stofnuð árið 1994 að frumkvæði Austurríkis og Hollands. Önnur aðildarlönd eru: Albanía, Andorra, Armenía, Bosnía- Herzegovína, Bretland, Búlgaría, Eistland, Finnland, Frakkland, fyrrverandi lýðveldi Júgóslavíu: Makedónía, Grikkland, Írland, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxembúrg, Króatía, Kýpur, Malta, Noregur, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.

Hlutverk Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz er að efla og styðja við nám og kennslu í tungumálum í Evrópu. Starfsemi tungumálamiðstöðvarinnar felst m.a. í skipulagningu námskeiða/ vinnustofa (workshops) í Graz og víðar. Einnig er á vegum stofnunarinnar unnið að margvíslegum þróunar- og rannsóknarverkefnum á sviði tungumálanáms og tungumálakennslu. Aðildarlönd geta sent einn þátttakanda á hvert námskeið (vinnustofu) sér að kostnaðarlausu.

Menntamálaráðuneytið á fulltrúa í stjórnarnefnd Tungumálamiðastöðvarinnar í Graz, en hefur falið Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, Neshaga 16, Reykjavík ýmsa framkvæmd þátttökunnar, s.s. kynningu og vinnu við að senda þátttakendur á vinnustofur.

Umsjón á Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins: Ragnhildur Zoëga, sími 525 58 13, netfang: rz@hi.is
Fulltrúi í stjórnarnefnd tungumálamiðstöðvarinnar: María Þ. Gunnlaugsdóttir, menntamálaráðuneyti, - sími 545 9500, netfang: maria.gunnlaugsdottir@mrn.stjr.is

Tilnefningaraðilar vegna þátttöku Íslendinga í vinnustofum: María Þ. Gunnlaugsdóttir, menntamálaráðuneyti, og Ragnhildur Zoega, Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins.

Nánari upplýsingar um hlutverk og starfsemi Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz er að finna á heimasíðu hennar: www.ecml.at . Sjá þar m.a. dagskrá, skýrslur frá vinnustofum og upplýsingar um útgefin rit.

Íslenskir þátttakendur í vinnustofum og ráðstefnum á vegum Tungumálamiðstöðvarinnar í Graz 1998-2005




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica