Erlent samstarf

EURYDICE

Eurydice (Upplýsinganet um menntamál í Evrópu) er upplýsinganet Evrópusambandsins og nær einnig til EFTA-ríkjanna sem taka fullan þátt í starfsemi þess samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Þar að auki var ríkjum Mið- og Austur Evrópu veittur aðgangur að Eurydice-netinu 1996 og senn fá Kýpur, Malta og önnur ríki sem tengjast Evrópusambandinu aðgang að því.

Menntamálaráðuneytið hefur síðan 1994 tekið þátt í upplýsinganetinu en meginmarkmið Eurydice er að vinna og miðla samanburðarhæfum upplýsingum og reynslu um menntamál til stefnumótandi aðila og koma upplýsingum á framfæri til allra sem starfa að skólamálum í Evrópu. Ráðuneytið hefur árlega uppfært upplýsingar um íslenska skólakerfið í gagnagrunni upplýsinganetsins sem er yfirgripsmikil lýsing á íslenska skólakerfinu.

Þá eru margbreytileg greiningar- og samanburðarrit gefin út á vegum Eurydice. Um er að ræða grundvallarrit þar sem leitast er við að lýsa uppbyggingu menntakerfa landanna eða taka til athugunar tiltekna þætti menntakerfanna svo sem kennaramenntun, tungumálakennslu, aðgengi að æðri menntun svo eitthvað sé nefnt. Einnig er um að ræða samanburðargreiningu á ýmsum stigum menntunar eins og leik,- grunn- og framhaldsskóla eða á einu afmörkuðu sviði eins og til dæmis starfstíma skóla.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica