Erlent samstarf

Veiting Evrópumerkisins á Íslandi árið 2003

Á Evrópskum tungumáladegi 26. september 2003 var Evrópumerkið veitt í fjórða sinn á Íslandi. Tvær umsóknir bárust um viðurkenninguna og hlaut önnur þeirra Evrópumerkið. Umsóknarfrestur var til loka júnímánaðar. Veiting viðurkenningarinnar fór fram í tengslum við dagskrá í Háskóla Íslands sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stóð fyrir í tilefni tungumáladagsins. Frú Vigdís Finnbogadóttir veitti viðurkenninguna.

Evrópumerkið 2003 hlaut verkefnið: Framfaramöppur í tungumálanámi
Umsjón: Brynhildur Anna Ragnarsdóttir, Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og Laugalækjarskóla.

Framfaramöppur í tungumálanámi eru í fysta lagi kennsluaðferð þar sem áhersla er lögð á námsferlið, viðfangsefni nemandans á hverjum tíma, tilgang námsins og hvað nemandinn telur sig læra af því sem unnið er við.

Í öðru lagi eru framfaramöppurnar matstæki sem byggir á áþreifanlegum sönnunargögnum sem sýna vinnuframlag, árangur og framfarir nemandans á tilteknu tímabili. Matið miðar að því að kanna í hvaða mæli nemandanum hefur tekist að ná tilteknum markmiðum. Matið byggir á viðmiðum og/eða samanburði við fyrri verkefni af sama eða svipuðum toga. Um getur verið að ræða ritverk, bókrýni, kannanir og mat nemanda á þeim, upplestur, ýmsar upptökur, dæmi um hópvinnu o.s.frv. Markmið einstakra verkefna og vinna við þau eru sett í samhengi við langtímamarkmið eða markmið aðalnámskrár.

Í þriðja lagi eru námsmöppurnar öflugt samskiptatæki í samskiptum nemanda og kennara og nemanda, kennara og foreldra. Mappan verður grundvöllur umræðna um framfarir og stöðu nemandans. Áherslan flyst frá einkunnum og umsögnum til mats á hvort og í hvaða mæli nemandinn hefur staðist markmið og kröfur hvers verkefnis.






Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica