Erlent samstarf

Veiting Evrópumerkisins árið 2001

Evrópumerkið var veitt í þriðja sinn á Íslandi 23. nóvember 2001. Athöfnin fór fram í Þjóðmenningarhúsi og veitti Björn Bjarnason, menntamálaráðherra viðurkenninguna. Umsóknarfrestur var til loka júnímánaðar. Alls bárust 4 umsóknir og hlaut ein þeirra Evrópumerkið 2001.

Evrópumerkið árið 2001 hlaut verkefnið:

Tölvustudd danska á almennri braut II í framhaldsskóla/ Menntaskólanum í Kópavogi.
Umsjón: Þórdís Magnúsdóttir og Þórhildur Oddsdóttir, kennarar við Menntaskólann í Kópavogi.

Verkefnið er sniðið fyrir nemendur í áfanganum DAN 393 á almennri braut II í Menntaskólanum í Kópavogi, en það getur einnig nýst einstaklingum sem liður í símenntun. Námsefnið er unnið út frá markmiðssetningu aðalnámskrár með tilliti til upplýsingatækni og áhersla á tungumálanám sem nýtist í daglegu lífi. Námsefnið er hugsað sem grunnefni í dönsku á almennri braut framhaldsskóla. Uppbyggingu og innihaldi námsáfangans er ætlað að stuðla að því að að nemendur nálgist námsgreinina út frá nýju sjónarhorni. Námsefnið er vefefni sem að hluta til er opið almenningi og að hluta til tengt aðgangsorði. Slóðin er: http:/www.ismennt.is/not/thordism/Vefur393/.

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur verði sér meðvitaðir um hvernig þeir læra tungumál og tileinki sér tækni sem auðveldar þeim námið. Áhersla er lögð á að auka ábyrgð nemenda á eigin námi og auka sjálfstraust þeirra gangvart upplýsingatækni og nýjum miðlum. Áfanginn er bókarlaus, -allt efni er sótt á margmiðlunardiska og á Veraldarvefinn. Verkefni í lestri, hlustun og ritun byggja á notkun rafrænna miðla. Helstu viðfangsefni eru menning, heilsa, matur, samskipti og ferðalög. Einstakir efnisþættir eru í stöðugri endurnýjun sem stuðlar að því að námsefnið sé ávallt nýtt og í takt við samtímann. Unnið er með ólíkar gerðir texta og eingöngu notaðir rauntextar, þ.e. textar sem ekki hafa verið umorðaðir eða styttir. Talþjálfun fer m.a. fram í litlum hópum með kennara og í svokölluðum dönskubúðum, en þá vinna nemendur og kennari saman í einn sólarhring og öll samskipti og samvinna fara fram á dönsku.






Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica