Erlent samstarf

Veiting Evrópumerkisins árið 1999

Evrópumerkið var veitt hér á landi í fyrsta sinn þann 4. júní 1999. Alls bárust 12 umsóknir um viðurkenninguna.

Eftirtalin verkefni hlutu Evrópumerkið 1999:

a) Stýrt sjálfsnám í tungumálum. Umsjón: Eyjólfur Már Sigurðsson,
Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands. Verkefnið nær til dönsku, frönsku, þýsku og spænsku. Um er að ræða einstaklingsmiðað tungumálanám fyrir alla nemendur Háskóla Íslands þar sem áhersla er lögð á sjálfstæði í námi og notkun nýrra miðla. Jafnframt eru aðstæður til skapandi málnotkunar undir leiðsögn kennara, s.s. með samtalstímum sem byggja á fjölmiðlaefni, ferlisritun með notkun tölva og gagnvirkri ritun í tölvupósti og á spjallrásum.

b) Tungumál iðngreina í Hótel og matvælaskólanum. Umsjón: Samuel Lefever, Valfríður Gísladóttir, Þórdís Magnúsdóttir og Þórhildur Oddsdóttir, Menntaskólanum í Kópavogi.

Verkefnið nær til dönsku, ensku og frönsku. Um er að ræða starfstengt tungumálanám til að auka færni nemenda í starfi á innlendum og erlendum vettvangi. Áhersla er m.a. lögð á virka talþjálfun við raunverulegar faglegar aðstæður. Nemendur og kennarar vinna m.a. með efni af Internetinu, margmiðlunardiskum og kynningarmyndböndum.

c) Danska fyrir þátttakendur í norrænu samstarfi og viðskiptum. Umsjón: Ágústa P. Ásgeirsdóttir, Bertha Sigurðardóttir og Brynhildur Ragnarsdóttir, Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og Norrænu tungumálaráðgjöfinni.

Verkefnið tekur til 8 vikna námskeiðs fyrir starfsmenn í stjórnsýslu, einkafyrirtækjum og félagasamtökum. Áhersla er lögð á þjáfun munnlegrar færni þátttakenda til að þeir geti orðið virkir í samskiptum við norrænar þjóðir með sérstöku tillliti til þátttöku á fundum. Notað er m.a. efni af Internetinu, blaðagreinar og fréttaefni af hljóð- og myndböndum.






Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica