Erlent samstarf

Veiting Evrópumerkisins árið 2000

Evrópumerkið var veitt í annað sinn á Íslandi 25. október 2000. Athöfnin fór fram Þjóðmenningarhúsi og veitti Björn Bjarnason menntamálaráðherra viðurkenninguna.

Umsóknarfrestur var fyrst auglýstur til 31. maí, en var framlengdur til 30. júní. Fjórar umsóknir bárust og hlaut ein þeirra Evrópumerkið.

Evrópumerkið árið 2000 hlaut verkefnið:

Tungumálanám á Neti. Umsjón: Brynhildur Anna Ragnarsdóttir, Gry Ek Gunnarsson, Ingegerd Narby og Þorvaldur Pálmason. Verkefnið var unnið vegum á Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur.

Verkefnið tekur til nemenda í sænsku í 9. bekk grunnskóla og nemenda í norsku í 9. og 10. bekk grunnskóla. Markmið með verkefninu er m.a. að skapa námsumhverfi á Netinu fyrir fyrrgreinda nemendur, óháð búsetu þeirra.

Um er að ræða kennsluvef með samskiptasetri og upplýsingavef. Kennsluvefurinn byggir á gagnvirkum vefverkefnum, stýrðum vefleiðöngrum, samskiptasetri og stuðningsverkefnum. Vefurinn er þannig úr garði gerður að nemendur geta tengst raunefni sem er í sífelldri endurskoðun á vefjum í Svíþjóð og Noregi. Námsefninu er skipt upp í þemu. Hvert þeirra er tveggja til þriggja vikna vinna. Miðað er við að nemendur geti sinnt náminu í nettengdri tölvu í sínum heimaskóla. Á upplýsinga-vefnum er að finna námslýsingar og þar er gerð grein fyrir tiltæku ítarefni og samstarfsaðilum. Einnig er þar að finna upplýsingar fyrir foreldra.






Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica