| Menntaskólinn við Hamrahlíð |
Tænke-tale (dan 413). Að auka kunnáttu nemenda í dönsku með áherslu á talþjálfun og fræðast um ákveðin málefni. |
| Menntaskólinn á Akureyri |
Ferðamálakjörsvið á málabraut MA. Að auka veg og vanda tungumálakennslu á framhaldsskólastigi með því að efla og styrkja málabraut MA. |
| Verzlunarskóli Íslands |
Samstarfsverkefni í spænsku og tölvu og upplýsingatækni. Samþætting námsgreina. Þverfagleg vinna sem leiðir til aukinnar fjölbreytni í tungumálanámi með áhugavekjandi námsefni og framsetningu þess. |
| Hjallastefnan |
Enskukennsla 5, 6, 7 og 8 ára barna. Ungir nemendur fá innsýn í algengt alþjóðlegt tungumál, nái að tileinka sér orð og hugtök og læri smám saman að nýta sér það til tjáningar. Öðlist trú á eigin getu. |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð |
Enska 483 - kvikmyndaáfangi. Að fræða nemendur um kvikmyndir og örva gagnrýna hugsun og efla enskukunnáttu á öllum sviðum. |
| Heiðaskóli |
Enska, nýjar áherslur. Að gera enskunámið skemmtilegra og mnarkvissaara. Meiri áhersla á talað mál og frjálsan lestur. |
| Menntaskólinn á Ísafirði |
Ritun erlends tungumáls á byrjunarreiti. Efla færni nemenda í að rita texta á dönsku. Efla sjálfstraust nemenda gagnvart ritun á erlendu tungumáli. |
| Móðurmál |
Móðurmálskennsla barna af erlendum uppruna. Meginmarkmið félagsins er að gefa tvítyngdum börnum tækifæri til að læra og viðhalda eigin móðurmáli og menningu. Rannsóknir hafa enda sýnt fram á að börn sem fá að læra tungumál foreldra sinna eiga auðveldara með að læra nýtt tungumál. |