Erlent samstarf
Veiting Evrópumerkisins á Íslandi 2007
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, afhenti Evrópumerkið við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu, 26. september 2007.
Evrópumerkið hlaut ferðamálakjörsvið Menntaskólans á Akureyri fyrir verkefni sitt á sviði nýjunga í tungumálanámi og tungumálakennslu. Umsjónarmaður verkefnisins er Margrét Kristín Jónsdóttir. Auk þess hlaut verkefnið Tungumálakennarinn sem rannsakandi sem þrír framhaldsskólar unnu á vegum Endurmenntunar Háskólans sérstök verðlaun. Umsjónarmaður verkefnisins er Anna Sjöfn Sigurðardóttir.
Auk Evrópumerkisins, sem framkvæmdastjórn ESB og menntamálaráðuneyti veitir, voru vegleg bókaverðlaun veitt.
