Kynning á orðalista Cedefop - Stofnun ESB um þróun starfsmenntunar
Síðustu ár hefur mikil vinna farið fram bæði innan mennta- og menningarmálaráðuneytis og í þróunarverkefnum tengdum ráðuneytinu, þar sem unnið er með ýmis hugtök sem tengjast viðmiðaramma Evrópusambandsins (EQF), ævinámi (lifelong learning), starfsmenntun, innleiðingu á tilskipun ESB um viðurkenningu prófskírteina (menntunar og hæfis) og staðfestingarferli fyrir prófgráður inn á hæfniþrep EQF. Þessi vinna mun fara vaxandi og mikilvægt að samstaða skapist um þýðingar og skilgreiningar á þeim hugtökum sem helst eru notuð. Vandamálið er alþjóðlegt og hefur Cedefop látið gera hugtakaskrá þar sem mikill fjöldi þessara hugtaka er skilgreindur.
Þessi skrá hefur nú verið þýdd á íslensku og er ætlað að samræma hugtakaskilning og orðanotkun.
Skráin verður til kynningar á vef ráðuneytisins til 15. janúar 2010. Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda athugasemdir og ábendingar um þýðinguna til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið postur@mrn.is
Að loknu umsagnarferlinu mun ráðuneytið gera þær lagfæringar á þýðingunni sem nauðsynlegar teljast og birta hugtakaskrána á vef ráðuneytisins.
- Cedefop - Orðalisti um íslenska menntastefnu (PDF)
- Orðskýringar - nýmenntastefna.is
