Jafnréttismál

Jafnréttismál

Í mennta- og menningarmálaráðuneytinu er starfandi jafnréttisráðgjafi. Starfið felst í því að hvetja til almennrar fræðslu um jafnréttismál í skólum, íþróttastarfi, æskulýðsstarfi og menningu. Einnig er ráðgjöf veitt um sértækar aðgerðir til að stuðla að jafnrétti kynjanna og gerð jafnréttisáætlana. Markmið með starfinu er að stuðla að auknu jafnrétti í mennta-, menningar- íþrótta- og æskulýðsmálum og að lögum um jafnrétti kynja innan þessara málaflokka sé fylgt eftir. Starfið er unnið samkvæmt 23. gr. laga nr. 10/2008

Kynungabók

Mennta- og menningarmálaráðuneytið gaf Kynungabók út í ágúst 2010. Bókin inniheldur upplýsingar fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja. Markmið með útgáfu Kynungabókar eru að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu og vekja ungt fólk til umhugsunar um hvernig mismunandi mótun kynjanna út frá menningu, umhverfi og tíma hefur áhrif á líf ungs fólks.

Í ritinu eru hnitmiðaðar upplýsingar úr rannsóknum, gagnagrunnum, lögum og reglugerðum. Nafnið, sem felur bæði í sér tilvísun í kyn og ungt fólk, er gamalt og gilt orð samkvæmt Orðabók menningarsjóðs. Skilgreining orðabókar á orðinu er „að vera af ákveðnu kyni eða sauðahúsi“. Kynungabók er einkum ætluð 15-25 ára ungmennum. Vonir standa til að allir sem koma að uppeldi og kennslu geti nýtt sér efnið.

Jafnréttisáætlun mennta- og menningarmálaráðuneytis

Mennta- og menningarmálaráðuneytið telur mikilvægt að nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum kvenna og karla. Jafnréttisáætluninni er ætlað að stuðla að jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan ráðuneytisins og minna starfsfólk jafnt sem stjórnendur  á mikilvægi þess að allir fái notið sín án tillits til kynferðis.

Í jafnréttisáætlun þessari er gerð grein fyrir jafnréttisnefnd og jafnréttisfulltrúa auk þess sem sett eru fram helstu markmið og aðgerðir ráðuneytisins sem miða að jafnrétti kynjanna.

Senda grein



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica