Nefndaskipanir
Nefndaskipanir
Fjöldi nefnda og starfshópa er starfandi á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis. Til þeirra er fyrst og fremst stofnað samkvæmt lögum, reglugerðum eða ályktunum Alþingis og ákvörðun ráðherra.
Nefndir eru annars vegar fastanefndir skipaðar samkvæmt lögum. Þær starfa samfellt að ákveðnum málum sem geta verið breytileg á starfstímanum. Hins vegar eru verkefnisnefndir og starfshópar sem starfa tímabundið.
Samtals voru 232 nefndir starfandi á vegum mennta- og menningarmálaráðneytisins samkvæmt nefndaskrá 31. desember 2010
- 173 nefnd, stjórn eða ráð sem skipað er í skv. lögum, reglugerðum, reglum eða þingsályktunartillögum
- 58 nefndir skipaðar af ráðherra, 1 nefnd skipuð af Alþingi
- Samtals 1.079 aðalmenn í nefndum, þar af 642 karlar og 437 konur eða 60% karlar og 40% konur
- Aðalmenn í nefndum skipuðum samkvæmt ákvörðun ráðherra var samtals 313 í árslok 2010, þar af 175 karlar eða 56% og 138 konur eða 46%
- Aðalmenn í nefndum skipuðum samkvæmt lögum, reglugerðum, reglum eða þingsályktunartillögum voru 756 talsins í árslok 2010, þar af 462 karlar eða 61% og 294 konur eða 39%
