Ráðuneyti
Menntamálaráðuneytið var formlega stofnað 1. júní 1947 þegar ákveðið var að forsætis- og menntamálaráðuneytið skyldu framvegis starfa undir sama ráðuneytisstjóra. Þetta hélst óbreytt til 1. janúar 1970, en þá var þeim skipt í tvö ráðuneyti.
Í samræmi við lög 98/2009 breyttist heiti menntamálaráðuneytis í mennta -og menningarmálaráðuneyti 1. október 2009.
Hlutverk
Helstu málefni sem ráðuneytið fer með varða: kennslu og skóla, rannsóknar- og vísindastarfsemi, listir og menningarstarf, útvarp og sjónvarp og íþrótta- og æskulýðsstarfsemi.
Ráðherra, Katrín Jakobsdóttir, fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Allar embættisfærslur starfsmanna eru gerðar í umboði ráðherra.
- Meðferð erinda (12. júní 2007)
- Málshraði (12. júní 2007)
- Auglýsing nr. 181/2007 um skipulag ráðuneytisins
- Staðreyndasíða, upplýsingar um starfsemi ráðuneytisins (apríl 2009)
Stefna
- Umhverfisstefna mennta- og mennigarmálaráðuneytis september 2009 (PDF - 32KB)
- Gæðastefna (12. júní 2007)
- Innkaupastefna ráðuneytisins (1. október 2003) (PDF - 96KB)
- Innkaupastefna ráðuneytisins og stofnana þess (25. apríl 2003) (PDF- 97KB)
- Jafnréttisáætlun ráðuneytisins ( 2008) (PDF)
