Framhaldsskólar
Jöfnun á námskostnaði
Sbr. lög um ráðstafanir til jöfnunar á námskostnaði nr. 23/1989 og reglugerð nr. 692/2003 um jöfnun námskostnaðar veitir ríkissjóður námsstyrki til jöfnunar á fjárhagslegum aðstöðumun nemenda í framhaldsskólum að því leyti sem búseta veldur misþungum fjárhagsbyrðum eða efnaleysi torveldar þeim nám.
Umsóknir er hægt að skrá og skila inn á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Miðað er við að úthlutun sé lokið fyrir lok febrúarmánaðar vegna liðinnar haustannar og yfirstandandi vorannar.

