Umsýsla með sveinsprófum í löggiltum iðngreinum
Iðan-fræðslusetur, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, sími 590 6400, idan@idan.is, annast sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum:
- Bíliðngreinar: bifreiðasmíði, bifvélavirkjun og bílamálun.
Bygginga- og mannvirkjagreinar: húsasmíði, húsgagnabólstrun, húsgagnasmíði, málaraiðn, múraraiðn, pípulagnir og veggfóðrun.
- Hönnunar- og handverksgreinar: gull- og silfursmíði, kjólasaumur, klæðskurður, skósmíði, söðlasmíði og úrsmíði.
- Matvæla- og veitingagreinar: bakaraiðn, framreiðsla, kjötiðn og matreiðsla.
Málm- og véltæknigreinar: blikksmíði, netagerð, rennismíði, stálsmíði og málmsuða, og vélvirkjun.
- Snyrtigreinar: hársnyrtiiðn og snyrtifræði.
Upplýsinga- og fjölmiðlagreinar: bókband, ljósmyndun, prentsmíð og prentun.
Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík, sími 580 5252, iaj@rafis.is, stefan@rafis.is, hefur umsjón með sveinsprófum í rafiðngreinum (rafeindavirkjun, rafveituvirkjun, rafvélavirkjun og rafvirkjun).
Flugvirkjafélag Íslands, Borgartúni 22, 105 Reykjavík, sími 562 1610, hefur umsjón með sveinsprófum í flugvirkjun.
Landbúnaðarháskóli Íslands að Hvanneyri, 311 Borgarnesi, sími 433 5000, lbhi@lbhi.is, hefur umsjón með sveinsprófum í skrúðgarðyrkju.

