Framhaldsskólar

Umsókn skólameistara um námsorlof fyrir kennara

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2012-2013 þurfa að berast menntamálaráðuneyti eigi síðar en 1. október 2011. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Styrkir vegna námsorlofs kennara og stjórnenda framhaldsskóla eru veittir á grundvelli reglugerðar um námsorlof framhaldsskólakennara nr. 331/1997 og reglugerðar nr. 580/1997.

Kennarar, skólameistarar og aðrir stjórnendur framhaldsskóla sem starfað hafa í a.m.k. fimm ár við kennslu- eða stjórnunarstörf í framhaldsskóla geta sótt um sérstakt námsorlof til þess að efla þekkingu sína og kennarahæfni.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins

  • Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.

  • Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar. Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja menntamálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir.

  • Þar er tvö umsóknareyðublöð; fyrir námsorlof kennara og stjórnendur framhaldsskóla og fyrir umsókn skólameistara um námsorlof kennara í nafni skóla.

  • Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því skrá sig inn á umsóknavefinn.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica