Styrkir - Grunnskólar

Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari

Ný lög um menntun og ráðningu, kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008 öðluðust gildi 1. júlí 2008. Frá sama tíma falla úr gildi lög nr. 86/1998, um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.

Ákvæði 3., 4. og 5. gr. hinna nýja laga, sem kveða á um menntun kennara, taka til þeirra sem hefja (skrá sig í) nám eftir gildistöku laga þessara. Það þýðir að fram til 1. júlí 2011 skulu þeir sem fá leyfisbréf til kennslu í leik-, grunn- og framhaldsskólum hafa lokið bakkalárprófi og tilskildu námi í uppeldis- og kennslufræðum. Eftir þann tíma skulu þeir sem fá leyfisbréf hafa lokið meistaraprófi eða jafngildu námi.

Grunn- og framhaldsskólakennarar með leyfisbréf við gildistöku nýrra laga halda fullum réttindum til jafns við þá sem öðlast starfsréttindi grunn- og framhaldsskólakennara samkvæmt nýjum lögum.


Umsókn um leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari sbr. lög nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og reglugerð nr. 695/1998 um lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara.

Með umsókn skal fylgja staðfest ljósrit af öllum skírteinum um lokapróf og yfirlit yfir námsferil. Ljósrit skulu staðfest af þeim skóla sem veitir viðkomandi réttindi.
Ríkisborgarar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins leggi fram vottorð um viðurkennd kennsluréttindi í ríki innan svæðisins. Þýðing prófskírteina á að vera frá löggiltum þýðanda.

Athygli er vakin á því að útfyllt eyðublað þarf að undirrita og senda ráðuneytinu í pósti, ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Ekki er tekið við umsóknum í bréfasíma eða tölvupósti.

Leyfisgjald að upphæð kr. 8.300 verður innheimt með gíróseðli þegar umsóknin hefur verð samþykkt. Afgreiðslufrestur er 3 vikur. Leyfisbréfið verður sent þegar greiðsla hefur verið innt af hendi.

Umsóknir berist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Vinsamlegast athugið að umsóknareyðublaðið er með svokölluðu PDF-sniði sem varðveitir uppsetningu þess. Sniðið krefst forritsins Acrobat Reader sem hægt er að nálgast með því að smella á myndina hér við hliðina:






Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica