Styrkir - Grunnskólar

Námsgagnasjóður

Námsgagnasjóður starfar samkvæmt lögum um námsgögn nr. 71/2007 og reglugerð um sjóðinn nr. 111/2007. Hlutverk sjóðsins er að leggja grunnskólum til fé til námsgagnakaupa í því augnamiði að tryggja val þeirra um námsgögn.

Framlag til námsgagnasjóðs er ákveðið í fjárlögum ár hvert og mennta- og menningarmálaráðuneytið skipar námsgagnasjóði þriggja manna stjórn til fjögurra ára í senn.

Stjórn sjóðsins ákveður skiptingu fjármuna milli grunnskóla til námsgagnakaupa á grundvelli upplýsinga frá Hagstofu Íslands um fjölda skráðra nemenda í hverjum grunnskóla á síðastliðnu skólaári.

Ráðstöfun á þessu fé er einskorðuð við kaup á námsgögnum frá lögaðilum og skulu námsgögnin samrýmast markmiðum aðalnámskrár. Óheimilt er að verja fjármunum úr námsgagnasjóði til búnaðar- og tækjakaupa.

Grunnskólar skulu láta sjóðsstjórn í té skilagrein á rafrænu formi um ráðstöfun úthlutunar eigi síðar en 30. apríl ár hvert.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica