Háskólar

Styrkir til háskólanáms í Hollandi



Hollensk stjórnvöld bjóða reglulega fram styrki til 3-10 mánaða háskólanáms í Hollandi. Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki þessa en ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þeirra kemur í hlut Íslendinga.

Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi eða kandídötum til framhaldsnáms. Nám við listaháskóla eða tónlistarháskóla er styrkhæft til jafns við almennt háskólanám. Umsækjendur skulu hafa gott vald á hollensku, ensku eða þýsku og vera yngri en 35 ára. Styrkfjárhæð er áætluð um 700 evrur á mánuði.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vef NUFFIC (Netherlands organization for international cooperation in higher education) og umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á slóðinni: www.nuffic.nl/pdf/i/huygensform.pdf.

Upplýsingar um nám í Hollandi:  HUYGENS-factsheet (pdf)

Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.  Sími: 545 9500, bréfasími: 562 3068, netfang: postur@mrn.stjr.is og skal umsóknum skilað þangað.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica