Háskólar

Leyfi til að nota starfsheitið bókasafns- og upplýsingafræðingur

Umsókn um leyfi til að nota starfsheitið bókasafns- og upplýsingafræðingur sbr. lög nr. 97/1984 um bókasafnsfræðinga og sbr. lög nr. 21/2001.

Með umsókn skal fylgja staðfest ljósrit af skírteini um lokapróf og yfirlit yfir námsferil. Ljósrit skulu staðfest af þeim skóla sem veitir viðkomandi réttindi.

Athygli er vakin á því að útfyllt eyðublað þarf að undirrita og senda ráðuneytinu í pósti, ásamt staðfestum ljósritum af nauðsynlegum gögnum. Ekki er tekið við umsóknum í bréfasíma eða tölvupósti.

Leyfisgjald að upphæð kr. 8.300 verður innheimt með greiðsluseðli þegar umsóknin hefur verð samþykkt. Afgreiðslufrestur er 3 vikur. Leyfisbréfið verður sent þegar greiðsla hefur verið innt af hendi.

Umsóknir berist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavk.

Vinsamlegast athugið að umsóknareyðublaðið er með svokölluðu PDF-sniði sem varðveitir uppsetningu þess. Sniðið krefst forritsins Acrobat Reader sem hægt er að nálgast með því að smella á myndina hér við hliðina.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica