Styrkir til háskólanáms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða reglulega fram styrki handa Íslendingum til rannsóknanáms við háskóla í Japan
Skilyrði
Ætlast er til að styrkþegar hafi lokið háskólaprófi og séu yngri en 35 ára. Þar sem kennsla við japanska háskóla fer fram á japönsku er ætlast til þess að styrkþegar leggi stund á japanska tungu um a.m.k. 6 mánaða skeið.
Umsóknarfrestur
Styrkirnir hafa að undanförnu verið auglýstir lausir til umsóknar í apríl með 4-6 vikna umsóknarfresti. Auglýsingin er birt í Morgunblaðinu og á vef menntamálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík (sími: 545 9500, bréfasími: 562 3068, netfang: postur@mrn.stjr.is). Umsóknum skal fylgja staðfest afrit prófskírteina, meðmæli og læknisvottorð. Ráðuneytið sér um að auglýsa styrkina og skal umsóknum skilað þangað.
