Háskólar
Styrkir til háskólanáms í Kína
Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram styrk handa Íslendingum til háskólanáms í Kína námsárið 2010-2011. Umsækjendur um styrk til grunnnáms í háskóla skulu vera yngri en 25 ára og yngri en 35 ára ef þeir sækja um nám á meistarastigi.
- Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í mennta- og menningarmálaráðuneyti svo og á vef CSC: www.csc.edu.cn/laihua
- Umsóknarfrestur er til 15. mars 2009.
- Umsóknir skal senda til mennta-og menningarmálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
- Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.
