Háskólar

Styrkir til náms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi


Þýsk stjórnvöld bjóða reglulega fram nokkra styrki handa Íslendingum til náms og rannsóknastarfa í Þýskalandi. Eftirtaldir styrkir eru í boði:

  • Allt að fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
  • Allt að þrír styrkir til að sækja sumarnámskeið í þýsku. Umsækjendur skulu vera komnir nokkuð áleiðis í háskólanámi og leggja stund á nám í öðrum greinum en þýsku. Einnig þurfa þeir að hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu.
  • Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknastarfa um allt að sex mánaða skeið.


Styrkirnir hafa að undanförnu verið auglýstir lausir til umsóknar í ágúst/september með 4-6 vikna umsóknarfresti. Auglýsingin er birt á vef menntamálaráðuneytis.

Nánari upplýsingar um styrkina og sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Sími: 545 9500, fax: 562 3068, netfang: postur@mrn.stjr.is

Einnig á vef Deutcsher Akademischer Austauschdienst (DAAD).

Ráðuneytið sér um að auglýsa styrkina og skulu umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, sendar þangað.





Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica