Styrkir til háskólanáms og rannsókna á Ítalíu
Ítölsk stjórnvöld bjóða Íslendingum reglulega styrki til háskólanáms á Ítalíu. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða náms við listaháskóla.
Styrkfjárhæð
er áætluð um 620 evrur á mánuði.
Umsóknarfrestur
Styrkirnir eru auglýstir lausir til umsóknar í mars/apríl með um 4 vikna umsóknarfresti. Auglýsingin er birt í Morgunblaðinu og á vef menntamálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar
Umsóknir á þar til gerðum umsóknareyðublöðum (sem fást í menntamálaráðuneytinu), ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík (sími: 545 9500, bréfasími: 562 3068, netfang: postur@mrn.stjr.is). Ráðuneytið sér um að auglýsa styrkina og veita nánari upplýsingar.
- Dichborsista
- Domandaborsa - Umóknareyðublað
- Letteraimpegno
