Framhaldsskólakennarar

Starfsleyfi framhaldsskólakennara

Umsókn um leyfi til að nota starfsheitið framhaldsskólakennari sbr. lög nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og reglugerð nr. 694/1998 um lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara.

Með umsókn skulu fylgja staðfest ljósrit af skírteinum um öll lokapróf , þar með talið próf úr uppeldis- og kennslufræðum, svo og yfirlit yfir námsferil. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest. Ljósrit af frumriti fæst staðfest hjá skólanum sem gaf út prófskírteinið, í mennta- og menningarmálaráðuneyti, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.

Ríkisborgarar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins leggi fram vottorð um viðurkennd kennsluréttindi í ríki innan svæðisins. Þýðing prófskírteina á að vera frá löggiltum þýðanda.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica