Starfsleyfi leikskólakennara
Umsókn um leyfi til að nota starfsheitið leikskólakennari sbr. lög nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og reglugerð nr. 695/1998 um lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara.
Leikskólakennarar með bakkalárpróf á sviði uppeldis- og kennslufræða frá viðurkenndri kennaramenntunar-stofnun, eða annað jafngilt nám sem lokið var með prófum sem tryggðu kennsluréttindi fyrir gildistöku nýrra laga, eiga rétt á leyfisbréfi.
Með umsókn þessari skulu fylgja staðfest ljósrit af skírteinum um öll lokapróf og yfirlit yfir námsferil. Með staðfestu ljósriti er átt við að samræmi milli frumrits og ljósrits sé staðfest. Ljósrit af frumriti fæst staðfest hjá skólanum sem gaf útprófskírteinið, í mennta- og menningarmálaráðuneyti, á lögreglustöðvum eða hjá sýslumanni.
Ríkisborgarar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins leggi fram vottorð um viðurkennd kennsluréttindi í ríki innansvæðisins. Þýðing prófskírteinis á að vera frá löggiltum þýðanda.
