Aðalnámskrá framhaldsskóla - drög að almennum hluta
Framhaldsskólar
Drög að nýjum almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla eru nú til kynningar á vefsvæði þessu. Námskrárdrögin eru unnin með hliðsjón af ákvæðum laga nr. 92/2008. Í aðalnámskrá framhaldsskóla er að finna nánari útfærslu á ákvæðum laga og reglugerða um nám og kennslu í framhaldsskóla. Fjallað er meðal annars um nám og kennslu, áherslu á grunnþætti, lykilhæfni og hæfniþrep, um uppbyggingu námsbrauta, stjórnun skóla og skipulag, réttindi og skyldur og mat og eftirlit.
Hér eru einnig birt til umsagnar drög að sameiginlegum inngangskafla fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Þar er fjallað um hlutverk aðalnámskrár, almenna menntun og gæðaeftirlit.
Inngangskaflinn og námskrárdrögin verða til kynningar á vefsvæði þessu til 20. janúar 2011. Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda athugasemdir og ábendingar um námskrárdrögin og inngangskaflann í heild eða einstaka þætti þeirra til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið namskra@mrn.is.
Að loknu umsagnarferlinu verður unnið úr innsendum ábendingum og athugasemdum. Stefnt er að því að gefa út nýjan almennan hluta aðalnámskrár framhaldsskóla í byrjun árs 2011.
- Aðalnámskrá framhaldsskóla - drög
- Sameiginlegur hluti aðalnámskrár - drög
