Námskrár

Starfsnámsbrautir

Námskrár í starfsnámi eru hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla. Starfsgreinaráð í einstökum starfsgreinum eða starfsgreinaflokkum gera tillögur til ráðuneytisins um námskrár á sínu sviði skv. ákvæðum 29. gr. framhaldsskólalaga. Við námskrárgerðina er höfð hliðsjón af þörfum vinnumarkaðarins fyrir menntun og hæfni starfsfólks þannig að námið búi nemendur með raunhæfum hætti undir störf í atvinnulífinu. Hver námskrá inniheldur lokamarkmið námsins, almennar ábendingar um nám og kennslu og námsmat auk brautalýsinga og lýsinga á inntaki, áhersluþáttum, markmiðum og námsmati í áföngum sérnáms.

Ennfremur er boðið upp á viðbótarnám til stúdentsprófs. Nemendur sem hafa lokið skilgreindu starfsnámi eiga kost á viðbótarnámi til stúdentsprófs í almennum bóklegum greinum, sbr. almennan hluta aðalnámskrá frá 2004.

Menntamálaráðherra skipar til fjögurra ára í senn starfsgreinaráð fyrir starfsgreinaflokka eða starfsgreinar. Í starfsgreinaráði eiga að jafnaði sæti 7 fulltrúar, 6 tilnefndir af samtökum atvinnurekenda og launafólks og einn fulltrúi menntamálaráðherra.

Starfsgreinaráð eru skipuð í eftirtöldum starfsgreinaflokkum og er sama flokkun höfð á námskránum.



Senda grein



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica