Matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreinar
Nám í matvæla- og veitingagreinum hefst með einnar annar sameiginlegu grunnnámi en að því loknu velja nemendur sérnám í bakaraiðn, framreiðslu, kjötiðn eða matreiðslu. Þessar greinar eru löggiltar iðngreinar. Námið er samningsbundið og lýkur með sveinsprófi. Það veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs:
- Bakaraiðn — 3 annir í skóla og 126 vikna starfsþjálfun.
- Framreiðsla — 3 annir í skóla og 80 vikna starfsþjálfun.
- Kjötiðn — 3 annir í skóla og 126 vikna starfsþjálfun.
- Matreiðsla — 3 annir í skóla og 126 vikna starfsþjálfun.
Eftirfarandi námsbraut er löggilt starfsgrein á heilbrigðissviði. Skóli brautskráir en heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti veitir starfsréttindi.
- Matartækni — 3 annir í skóla og 80 vikna starfsþjálfun.
Eftirfarandi námsbrautir veita nemendum almenna menntun ásamt þekkingu og færni í grunnþáttum starfsins:
- Hússtjórnarbraut — 2 annir í skóla.
- Matsveinanám — 1 önn í skóla og 24 vikna starfsþjálfun. Ekki er skylt að hafa lokið grunnnámi í matvæla- og veitingagreinum.
- Nám í kjötskurði — 2 annir í skóla og 80 vikna starfsþjálfun. Að námi loknu gefst nemendum kostur á að halda áfram sérnámi til sveinsprófs í kjötiðn.
- Nám fyrir aðstoðarþjóna — 2 annir í skóla og 12 vikna starfsþjálfun. Að námi loknu gefst nemendum kostur á að halda áfram sérnámi til sveinsprófs í framreiðslu.
- Nám í slátrun — 1 önn í skóla og 24 vikna starfsþjálfun. Ekki er skylt að hafa lokið grunnnámi í matvæla- og veitingagreinum.
- Nám fyrir aðstoðarkokka — 2 annir í skóla og 52 vikna starfsþjálfun.
- Smurbrauðsnám — 3 annir í skóla og 80 vikna starfsþjálfun.
Á sviði ferðaþjónustu er um að ræða tvær námsbrautir. Um báðar brautirnar gildir að nemandi þarf að vera tvítugur og hafa lokið haldgóðu undirstöðunámi, stúdentsprófi eða hliðstæðu námi.
- Leiðsögunám — 2 annir í skóla.
- Starfsnám í ferðamálafræðum — 2 annir í skóla og 12 vikna starfsþjálfun.
- Aðalnámskrá framhaldsskóla: Matvæla- og veitingagreinar — grunnnám matvæla- og veitingagreina, námsbraut í bakaraiðn, námsbraut í framreiðslu, námsbraut fyrir aðstoðarþjóna, námsbraut í kjötiðn, námsbraut í kjötskurði, námsbraut í slátrun, námsbraut í matreiðslu, námsbraut í matartækni, námsbraut í smurbrauði, námsbraut fyrir aðstoðarkokka, námsbraut fyrir matsveina 2004
- Leiðsögunám 2004
- Aðalnámskrá framhaldsskóla: Starfsnám í ferðamálafræðum 2004
- Starfsgreinaráð
