HTMLrit
Menning og menntun
Menning og menntun
forsenda framtíðar
Fyrir alþingiskosningar 8. apríl 1995 kom fram mikill áhugi hjá öllum stjórnmálaflokkum á að styrkja menntun íslensku þjóðarinnar. Hann kemur einnig fram í stefnuyfirlýsingu annars ráðuneytis Davíðs Oddssonar, sem var myndað 23. apríl 1995. Þar segir að vegur menntunar og rannsókna verði aukinn, en það sé forsenda nýsköpunar í atvinnulífinu. Standa eigi vörð um íslenska tungu og þjóðmenningu og stuðla eins og kostur er að öflugu lista- og menningarlífi sem aðgengilegt sé öllum landsmönnum. Í stefnuræðu sinni í upphafi 120. löggjafarþings sagði forsætisráðherra að góð menntun væri besta tryggingin fyrir því að íslenska þjóðin stæðist samkeppni og gæti skarað fram úr á alþjóðamarkaði. Íslendingar hlytu að setja sér það mark að námskröfur hér á landi væru á borð við þær sem bestar þættu á heimsmælikvarða. Slíkar kröfur væri hægt að gera, þó að um leið væri hugað sérstaklega að því sem íslenskt væri.
Þessum ásetningi verður ekki hrundið í framkvæmd nema skýr stefna og verkefnaáætlun liggi fyrir af hálfu menntamálaráðuneytisins. Að slíkri stefnumótun hefur verið unnið á vegum þess og liggur hún nú fyrir. Áætlunin setur ráðuneytinu skýr markmið við úrlausn verkefna sinna.
Í mennta- og menningarmálum er aldrei unnt að halda þannig á viðfangsefnum, að allir séu sammála um úrlausn þeirra. Ég vona þó, að þannig sé tekið á málum í þessari verkefnaáætlun menntamálaráðuneytisins fyrir kjörtímabilið, að þar ráði raunsæi og fyrirhyggja.
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra
menntamálaráðherra
Efnisyfirlit
Inngangur
Til móts við 21. öldina
Menntamál
Íþrótta- og æskulýðsmál
Menningarmál
- Samvinna og sjálfstæði menningarstofnana
- Íslensk tunga
- Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn
- Tónlistarhús
Fjölmiðlun
