Mennta- og menningarmálaráðuneyti

Beint í leiðarkerfi vefsins.


20111710

Stefna mennta- og menningarmálaráðuneytis í íþróttamálum

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur birt stefnu sína í íþróttamálum. Hún er sameiginleg stefna þeirra aðila sem bera ábyrgð á málaflokknum, sem eru ríkið, sveitarfélögin og íþróttahreyfingin.  Stefnan byggist á því grundvallarsjónarmiði að almennt íþróttastarf á Íslandi skuli skipulagt af frjálsum félagasamtökum. Hún tekur að auki á öllum helstu þáttum íþrótta í félagastarfi og hvernig opinberir aðilar og atvinnulíf  geti stutt við það starf.  Þá er lögð sérstök  áhersla á að auka hreyfingu barna og unglinga á öllum skólastigum.
 
Í byrjun árs 2005 skipaði þáverandi menntamálaráðherra starfshóp til þess að fara yfir íþróttamál á Íslandi með það að markmiði að móta íþróttastefnu. Í nefndinni sátu fulltrúar ríkis, sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar og skilaði sú nefnd áfangaskýrslunni „Íþróttavæðum Ísland“ í ársbyrjun  2006. Nefndin ræddi í vinnu sinni við fjölda fag- og fræðimanna, starfsfólk íþróttahreyfingarinnar, fulltrúa sveitarfélaga og ýmissa samtaka. Haustið 2008 fól ráðherra svo íþróttanefnd ríkisins að ljúka við gerð íþróttastefnunnar og byggja hana m.a. á endurmati stefnumótunar sem unnin var árið 1997 af starfshópi menntamálaráðuneytis, áfangaskýrslunni „Íþróttavæðum Ísland“ frá 2006 og öðrum áherslum mennta- og menningarmálaráðherra.

Stefna í íþróttamálum tekur mið af þeim lagaskyldum sem ríkið hefur samkvæmt íþróttalögum, alþjóðalögum og samningum sem tengjast opinberum aðilum og frjálsum félagasamtökum, sem fara með íþróttamál í landinu.  Auk þess birtist hún í framlögum á fjárlögum til íþróttamála og áherslum mennta- og menningarmálaráðherra hverju sinni. Til þess að vinna að framgangi stefnunnar er mikilvægt að aðilar sem bera ábyrgð á málaflokknum, þ.e. ríkið, sveitarfélögin og íþróttahreyfingin, hafi með sér samráð og samstarf. Byggt er á því grundvallarsjónarmiði að almennt íþróttastarf á Íslandi skuli skipulagt af frjálsum félagasamtökum. Þar er vísað til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ungmennafélags Íslands, sérsambanda, íþróttahéraða, íþróttafélaga og deilda um land allt. Stór hluti landsmanna tekur þátt í þessu starfi á einn eða annan hátt. Stefnan tekur einnig á öllum helstu þáttum íþrótta í félagastarfi og hvernig opinberir aðilar og atvinnulíf geti stutt við það starf. Þá er lögð sérstök áhersla á að auka hreyfingu barna og unglinga á öllum skólastigum. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á nauðsyn þess að bæta lífsstíl fólks og gegnir skólakerfið leiðandi hlutverki við að hvetja til hreyfingar og að auka þekkingu á gildi íþrótta. Við mótun stefnunnar var horft til framtíðar og tekið mið af því sem áunnist hefur á undanförnum árum. Sett eru fram skýr markmið og bent á leiðir til að framfylgja þeim. Stefna þessi gildir til ársins 2015 og verður hún þá endurmetin.

Helstu markmið eru eftirfarandi:

  • Umhverfi og skipulag íþróttastarfs í landinu verði bætt og  því skipaður verðugur sess í íslensku þjóðlífi.
  • Almenningsíþróttir verði efldar og landsmenn taki aukinn þátt  í íþróttum og almennri hreyfingu.
  • Íþróttaiðkun barna og unglinga í skóla og frjálsu félagastarfi íþróttahreyfingarinnar verði efld.
  • Keppnis- og afreksíþróttir verði efldar.  
  • Að sem flestir hafi tækifæri til þess að stunda íþróttir á því sviði sem þeir kjósa, hvort heldur er til ánægju, heilsubótar eða með afreksárangur í huga.  
  • Menntun og rannsóknir á sviði íþróttafræða verði efldar.
  • Íslenskt íþróttalíf verði ávallt laust við lyfjamisnotkun.
  • Uppbygging íþróttastarfs, hvort sem um er að ræða æfingar eða keppnir taki mið af því að allir hafi sömu tækifæri til þátttöku.

  • stefnumótun mennta- og menningarmálaráðuneytis í íþróttamálum

Annað efni í vefriti:

  • Vefritið hefur göngu sína að nýju
  • Stórt skref til eflingar starfsnámi
  • Styrkir til háskólanáms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi
  • Úthlutun fjár til vinnustaðanáms og starfsþjálfunar 2011
  • Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kemur til starfa
  • Niðurstöður úttektar á kennslu í lögfræði
  • Athyglisvert verkefni í Hörpu
  • Frumvarp til sviðslistalaga - frestur til að skila inn ábendingum framlengdur til 30. nóvember 2011.
  • Samstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun kennara
  • Málþing um nýja aðalnámskrá leikskóla
  • Staðfesting á útnefningu Surtseyjar á heimsminjaskrá UNESCO
  • Vel sótt og árangursrík ráðstefna um gæðamál háskóla
  • Ráðherra heiðrar skáksveit Rimaskóla
  • Umsóknir um styrki sem Alþingi veitti áður
  • Ráðstefna um gæðamál háskóla
  • Ráðherra tekur við staðfestingarskjali um Surtsey á heimsminjaskrá UNESCO
  • Eftirlit með framkvæmd samninga eflt
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið : valáfangar í grunnskólum : apríl - júní 2011

Þú ert hér: Útgáfur > Útgáfur > Vefrit > 20111710

www.menntamalaraduneyti.is

  • Forsíða
  • Ráðuneytið
  • Ráðherra
  • Verkefni
  • Lög og reglugerðir
  • Útgáfur
  • Stofnanir

Þú ert hér: Útgáfur > Útgáfur > Vefrit > 20111710

Útgáfur

  • Fréttir
    • Fréttatilkynningar
  • Útgáfur
    • Útgáfuskrá
    • Ný rit
    • Vefrit
      • Áskrift að vefriti
  • Dreifibréf
  • Námskrár
    • Málþing um aðalnámskrá leikskóla
      • Aðalnámskrá leikskóla
      • Fundargögn og upptökur
      • Skráning

www.menntamalaraduneyti.is

  • Ráðuneytið
    • Aðgengisstefna
    • Afgreiðsla
    • Fjármál
    • Fyrirspurnir
    • Laus störf
    • Málþing og ráðstefnur
    • Skipulag
    • Skjaldarmerki
    • Starfsfólk

  • Ráðherra
    • Ræður og greinar ráðherra
    • Þingstörf
    • Fyrirspurnir á AlþingiViðburðadagatal
    • Fyrri ráðherrar
  • Verkefni
    • Menningarmál
    • MenntamálVísinda- og háskólamálÍþrótta- og æskulýðsmál
    • JafnréttismálFjölmiðlamál
    • NefndirMálþing og ráðstefnur  AuglýsingarSjóðir og eyðublöð
    • StarfsleyfiÚrskurðir og álit
    • Erlent samstarf

  • Útgáfur
    • Fréttir
    • Útgáfur DreifibréfMat og úttektir
    • Námskrár
    • Réttarheimildir
  • Lög og reglugerðir
    • Lög, reglugerðir, reglur og samþykktir á sviði mennta- og menningarmála-ráðuneytis
  • Stofnanir
    • Stofnanir sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið

Samskipti

Mennta- og menningarmálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík Sjá kort
Sími 545 9500 - Bréfasími 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: postur@mrn.is - Fyrirspurnir - Fyrirvari - Aðgengisstefna

Leit á vefsvæðinu


Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
  • Nota mínar stillingar

Tungumál

  • Enska
  • Norska

Flýtival

  • Veftré
  • Hafa samband

  • Veldu ráðuneyti

  • Stjórnarráð Íslands

Ráðuneyti:

  • Forsætisráðuneytið
  • Fjármálaráðuneytið
  • Innanríkisráðuneytið
  • Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
  • Utanríkisráðuneytið
  • Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
  • Iðnaðarráðuneytið
  • Mennta- og menningarmálaráðuneytið
  • Umhverfisráðuneytið
  • Velferðarráðuneytið

Aðrir vefir

  • island.is

Þetta vefsvæði byggir á Eplica