Hoppa yfir valmynd
25. október 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun kennara

Samstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun kennara á öllum skólastigum neðan háskólastigs hefur tekið til starfa.


Samstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun kennara

Guðfinna Harðardóttir frá sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sigurjón Mýrdal frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Jón Torfi Jónasson frá Menntavísindasviði HÍ, Edda Kjartansdóttir, starfsmaður og Elna Katrín Jónsdóttir frá Kennarasambandi Íslands



  • Samstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun kennara á öllum skólastigum neðan háskólastigs hefur tekið til starfa.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Kennarasamband Íslands, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Háskólinn á Akureyri, Listaháskóli Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa gert með sér samkomulag eða sérstaka viljayfirlýsingu um samstarf á sviði símenntunar. Stofnuð hefur verið samstarfsnefnd þessara aðila með það að markmiði að vinna að verkefnum á sviði símenntunar og starfsþróunar kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.

Helstu verkefnin verða þessi:

  • Að samræma og flokka upplýsingar um símenntunartilboð fyrir kennara og koma á laggirnar upplýsingaveitu um framboð símenntunar fyrir kennara.
  • Að setja fram sameiginlegan skilning aðila á því hvað felst í símenntun/starfsþróun kennara og vinna að því að auðvelda kennurum á mismunandi skólastigum að sækja sömu  símenntun/starfsþróun, að sækja sameiginleg námskeið, ráðstefnur og þróunarverkefni
  • Vinna við að greiða leið kennara til að nýta sér námsframboð háskólanna samhliða vinnu.
  • Að ræða  þróun samræmdra aðferða við skráningu starfsþróunar

Verkefnin byggja að verulegu leyti á tillögum nefndar á vegum mennta- og menningarmálaráðherra sem skilaði skýrslu um símenntunarmál í árslok 2010 en sömu aðilar og nú hafa gert með sér samkomulag áttu fulltrúa í þeirri nefnd. Skýrsluna má lesa á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins

Samstarfsnefndinni til fulltingis er stýrihópur sem í sitja 4 fulltrúar úr hópi þeirra sem sitja í samstarfsnefndinni og ennfremur hefur verið skipuð fjögurra manna ritstjórn upplýsingaveitu um símenntun.

Samkomulagið er um vinnu að fyrrgreindum málefnum í eitt ár 1. október 2011 – 30. september 2012 og ráðinn hefur verið starfsmaður í 50% starf til að vinna með stýrihópi og samstarfsnefnd. Allir aðilar samkomulagsins leggja fé af mörkum til starfsins.

  • Nánari upplýsingar gefur starfsmaður samstarfsnefndar, Edda Kjartansdóttir, [email protected] ,sími 525 5983.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum