Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku vorið 2012
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar.
Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna fylgja umsókninni.
Umsækjandi skal veita mennta- og menningarmálaráðuneyti upplýsingar um markmið námsins, fjölda námskeiða, heildarfjölda þátttakenda og þá upphæð sem sótt er um.
Aðilar sem bjóða upp á fleiri en fimm námskeið skila aðeins inn einu umsóknareyðublaði, en því skal fylgja sundurliðað yfirlit þar sem fram koma upplýsingar um hvert námskeið og heildarfjölda námskeiða, heildarfjölda þátttakenda, samanlagðan nemendastundafjölda, áætlaðan kostnað og heildarupphæð sem sótt er um.
Að námskeiði loknu, áður en til lokagreiðslu styrks kemur og eigi síðar en 15. júní 2012, ber að senda inn lista með nöfnum og kennitölum nemenda sem sóttu námskeiðin og ber þá að taka mið af þeim sem mættu í 75% kennslustunda að lágmarki. Fækki námskeiðum, eða þátttakendum á námskeiðum, frá því sem upphaflega var áætlað skerðist styrkurinn hlutfallslega sem nemur fækkuninni.
Ráðuneytið hefur eftirlit með gæðum námskeiðahaldsins og áskilur sér rétt til að kalla eftir frekari upplýsingum er varða rekstur og faglega framkvæmd námskeiða. Þar með taldar eru upplýsingar um reikningshald, fjármögnun, greiðslur nemenda og viðveruskráningu, sem og upplýsingar um kennara, menntun þeirra og starfsreynslu og það námsefni sem stuðst er við.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.
Umsóknir skal senda á postur@mrn.is.
Umsóknarfrestur er til 19. desember 2011.
Annað efni í vefriti:
- Tillögu um friðun húsa í Skálholti vísað til frekari meðferðar
- Mikilvægur áfangi hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
- Ráðstefna um opið menntaefni
- Inntak háskólastarfsemi og fjöldi stofnana
- Málþing í samstarfi við OECD um aðgerðir til að vinna gegn brotthvarfi nemenda úr framhaldsskólum
- Erasmus fyrir alla - áætlun ESB fyrir menntun, þjálfun, æskulýðsmál og íþróttir 2014-2020
- Drög að frumvarpi til bókasafnalaga
- Fundaröð mennta- og menningarmálaráðuneytis um starfsmenntun haustið 2011.
- Skólasókn 16 ára unglinga í framhaldsskóla á árunum 2004 til 2010
