Hvaða gagn er að lestri?
Opin ráðstefna um lestur og lestrarmenningu þriðjudaginn 17. október
Hvaða gagn er að lestri?
Ráðstefna undir yfirskriftinni „Hvaða gagn er að lestri" um lestur og lestrarmenningu, verður haldin á þriðjudag kl. 15 í Sunnusal Hótel Sögu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setur ráðstefnuna, sem haldin er á vegum menntamálaráðuneytisins, Eddu útgáfu hf., Eymundssonar og Bókabúðar Máls og menningar.
Almar Halldórsson og Ragnar F. Ólafsson sérfræðingar hjá Námsmatsstofnun flytja erindi undir yfirskriftinni „Lesskilningur og íslenskukunnátta 15 ára nemenda", þar sem fjallað er um sérstöðu Íslands og forspárþætti samkvæmt niðurstöðu PISA 2000 og samræmdra prófa. Í erindinu kemur meðal annars fram hvort tíður kvöldlestur með börnum hafi jákvæð áhrif á íslenskukunnáttu eða ánægja nemandans af lestri.
Laufey Blöndal nemi í 9. bekk flytur erindi undir yfirskriftinni „Ég hef aldrei lesið leiðinlega bók", en Laufey sló met í lestri bóka þegar hún las 28 þúsund blaðsíður í fyrravetur, en lesturinn var hluti af námsefninu í bókasafnstímum Austurbæjarskóla.
Andrea G. Dofradóttir Félagsvísindastofnun flytur erindi undir yfirskriftinni „Spennandi er skemmtilegt" um lestur barna og unglinga, en þar kynnir hún niðurstöður rýnihópa meðal krakka um viðhorf til lestrar.
Eiríkur Hermannsson fræðslustjóri hjá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar flytur erindi undir yfirskriftinni „Er hægt að skapa lestrarmenningu". Umbótaverkefninu „Lestrarmenning í Reykjanesbæ" var hleypt at stokkunum vorið 2003 og lögð áhersla á að læsi, lestrarfærni og málþroski barna væri samfélagslegt verkefni þar sem allir uppalendur bæru ábyrgð. Verkefnið fólst annars vegar í því að efla málþroska og málskilning barna í leik- og grunnskólum og að efla lestrarkennslu og yndislestur barna og unglinga og hins vegar í því að ýta undir áhuga á lestri og bókmenntum í bæjarfélaginu í heild og vekja athygli uppalenda á mikilvægi þeirra sem fyrirmynda um lestrarvenjur. Verkefnið hlaut sérstaka viðurkenningu á Degi íslenskrar tungu árið 2005.
Loks stýrir Brynhildur Þórarinsdóttir barnabókahöfundur pallborðsumræðum.
Aðgangur er ókeypis og boðið upp á kaffiveitingar. Pétur Blöndal blaðamaður stýrir ráðstefnunni.
- Nánari upplýsingar er að finna á vefnum lesum.is.

