Samningar
Framhaldsskólar
Skólasamningar gilda í 2-4 ár. Þeir eru liður í að skapa umgjörð fyrir samræðu ráðuneytis og skóla og gera eftirlit ráðuneytisins skilvirkara og samstarf við skóla um þau mál betri. Í samningunum er kveðið á um skyldur samningsaðila varðandi regluleg samskipti og upplýsingagjöf og í þeim er fjallað um hlutverk og megináherslur, viðfangsefni og rekstrarverkefni ef einhver eru. Aðaláherslan í samningunum er á markmið og tímabundin verkefni en hvort tveggja er endurskoðað árlega. Nánar ->
Háskólar, þekkingarnet, fræða- og þekkingarsetur
Samningar við háskóla eru til fimm ára. Hverjum samningi fylgir viðauki, þar sem starfsemi skólanna er skilgreind nánar og er hann til endurskoðunar ár hvert.
Markmið samninganna er m.a. að auka gagnsæi og eftirlit með rekstri skólanna ásamt því að regluleg endurskoðun viðauka hvers samnings gerir skólanum og ráðuneyti kleift að bregðast jafnóðum við þjóðfélagsbreytingum og sníða rekstur skólanna og háskólastigins í landinu að þörfum þjóðfélagsins á hverjum tíma.
Samningar við setur eru til 3 ára. Meginmarkmið samninganna er að bæta aðgengi íbúa að námi og stuðla að auknu samstarfi og samþættingu menntunar, rannsókna, fræðastarfs og atvinnuþróunar. Jafnframt að þróa námsleiðir og/eða námskeið á háskólastigi m.a. í samstarfi við háskóla, sérfræðinga og önnur þekkingarsetur.
Reglulegt samráð verður milli ráðuneytisins og setrana um markmið og árangur. Slík samskipti eru í samræmi við stefnu mennta- og menningarmálaráðuneytis um auka upplýsingagjöf um þau verkefni sem það styður við.
Nánar ->

