Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema
Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema úrskurðar í málum þar sem námsmenn í ríkisháskólum og öðrum háskólum, sem hlotið hafa viðurkenningu mennta- og menningarmálaráðherra skv. 3. gr. laga um háskóla nr. 63/2006, telja brotið á rétti sínum varðandi:
- framkvæmd prófa og námsmats, þ.m.t. fyrirlögn prófa, tilhögun einkunnagjafar, skipun prófdómara og birtingu einkunna,
- mat á námsframvindu, þ.m.t. rétt til endurtökuprófs,
- afgreiðslu umsókna um skólavist, þ.m.t. tilhögun mats á námi á milli skóla,
- brottvikningu nemanda úr skóla og beitingu annarra agaviðurlaga.
Frekari upplýsingar um hlutverk nefndarinnar er að finna í reglum nr. 1152/2006 um störf áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema samkvæmt 20. gr. laga um háskóla nr. 63/2006.
Skriflegum erindum til áfrýjunarnefndar skal beint til:
Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema
B.t. Dóru Sif Tynes, hdl.
ADVEL lögmenn
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
