Hoppa yfir valmynd
17. júlí 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir Snorra Sturlusonar

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum auglýsir árlega styrki Snorra Sturlusonar lausa til umsóknar.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum auglýsir árlega styrki Snorra Sturlusonar lausa til umsóknar. Styrkirnir eru veittir erlendum rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum (ekki háskólastúdentum) á sviði mannvísinda til að dveljast á Íslandi í þrjá mánuði hið minnsta í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir miðast að öllu jöfnu við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega til og frá Íslandi og dvalarkostnaði innanlands. Af tveimur jafnhæfum umsækjendum skal að jafnaði sá hljóta styrk sem er frá Austur- og Suður-Evrópu, Asíu, Afríku, Rómönsku Ameríku eða Eyjaálfu.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum greiðir götu styrkþega meðan á Íslandsdvöl þeirra stendur og í lok hennar skulu styrkþegar skila stofnuninni greinargerð um hvernig styrknum var varið.

Í umsókn sinni skulu umsækjendur gera stutta en rækilega grein fyrir tilgangi með dvöl á Íslandi, dvalartíma, svo og menntun og störfum.

  • Skrifleg umsóknir - ekki rafræn - sendist stofnuninni fyrir 1. nóvember ár hvert.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Stofa Sigurðar Nordals
Pósthólf 1220
121 Reykjavík

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum