Breytt fyrirkomulag umsókna um styrki og úthlutanir þeirra á safnliðum á fjárlögum
Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga.
Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga eins og verið hefur. Alþingi mun áfram ákvarða umfang styrkja til einstakra málaflokka en úthlutun þeirra mun flytjast til ráðuneyta, lögbundinna sjóða, menningarráða landshluta eða annarra sem sjá um og bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum.
Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir.
- Umsóknarfrestur er til 2. desember og úthlutað er einu sinni á ári eða eigi síðar en 31. janúar ár hvert.
- Umsóknareyðublað
- Reglur um úthlutun