Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagur íslenskrar tungu - Dagskrá mennta- og menningarmálaráðherra

Síðastliðin ár hefur skapast sú hefð að mennta- og menningarmálaráðherra heimsækir skóla og menningarstofnanir í einu ákveðnu sveitarfélagi á degi íslenskrar tungu.

dagur íslenskrar tungu
dagur íslenskrar tungu

Síðastliðin ár hefur skapast sú hefð að mennta- og menningarmálaráðherra heimsækir skóla og menningarstofnanir í einu ákveðnu sveitarfélagi á degi íslenskrar tungu. Hátíðardagskrá og afhending Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar er einnig haldin í því sveitarfélagi. Síðustu tvö ár hefur menntamálaráðherra heimsótt Akureyri og Borgarnes og nú í ár verður Katrín Jakobsdóttir í Breiðholti í Reykjavík. Ráðherra mun heimsækja skóla í Breiðholti og víðar og opna  ISLEX-veforðabókina í Norræna húsinu.

Dagskrá mennta- og menningarmálaráðherra 16. nóvember

  • 09:00 –10:00    Heimsókn í Fellaskóla, Norðurfelli 17 – 19, samkoma barna og eldri 
                                borgara í tilefni af degi íslenskrar tungu.
  • 10:00 – 10:30   Fellaskóli skoðaður, áhersla á íslensku sem annað mál og kennslu
                                innflytjenda.
  • 10:40 – 11:20   Heimsókn í leikskólann Holt, Völvufelli 9, áhersla á íslensku sem
                                annað mál og starf með börnum af erlendum uppruna.
  • 11:30 – 12:40   Skoðunarferð um Fjölbrautarskólann í Breiðholti, sérstök áhersla á
                                innflytjendabraut.
  • 14:30 – 15:30   Heimsókn í leikskólann Sólborg, Vesturhlíð 1, sérstök áhersla á
                                táknmál.
  • 16:00    - 16:40  Norræna húsið. Opnun ISLEX – veforðabókarinnar.
  • 17:00    - 18:00  Hátíðardagskrá í Gerðubergi.

Ráðherra afhendir Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar  og sérstaka viðurkenningu fyrir störf í þágu íslensks máls.

  • Nánari upplýsingar veitir Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir á skrifstofu menningarmála.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum