Styrkur til háskólanáms í Kína skólaárið 2009-2010
Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram styrk handa Íslendingum til háskólanáms í Kína námsárið 2009-2010. Umsækjendur um styrk til grunnnáms í háskóla skulu vera yngri en 25 ára og yngri en 35 ára ef þeir sækja um nám á meistarastigi.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneyti svo og á vef CSC: www.csc.edu.cn
- Umsóknarfrestur er til 15. mars 2009.
Umsóknir skal senda til menntamálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.