Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2007 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starf ritara á fjármálasviði

Umsóknarfrestur er til 18. desember 2007

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf ritara á fjármálasviði. Starfið er fjölþætt og felst í almennum ritara- og skrifstofustörfum auk umsjón með bókun ferða starfsmanna ráðuneytisins. Um er að ræða fullt starf.

Leitað er að einstaklingi með stúdentspróf eða sambærilega menntun. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, hæfni í mannlegum samskiptum og góð kunnátta í íslensku ásamt ritfærni eru nauðsynlegir kostir. Æskilegt er að viðkomandi búi yfir kunnáttu í ensku og einu norðurlandamáli.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningum starfsmanna Stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri upplýsinga- og þjónustusviðs.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 18. desember 2007.

Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum