Hoppa yfir valmynd
4. ágúst 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Íþróttasjóður 2007

Úr Íþróttasjóði, sem starfar samkvæmt íþróttalögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð nr. 188/1999 og reglugerð nr. 388/2001 um breytingu á þeirri reglugerð, má veita framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta.

Úr Íþróttasjóði, sem starfar samkvæmt íþróttalögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð nr. 188/1999 og reglugerð nr. 388/2001 um breytingu á þeirri reglugerð, má veita framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta:

  1. Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna.
  2. Íþróttarannsókna.
  3. Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

Umsóknir um styrki úr Íþróttasjóði vegna ársins 2007 skulu berast Íþróttanefnd, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum, í síðasta lagi 1. október 2006. Reglugerð sjóðsins og eyðublöð fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins og á vef þess, menntamalaraduneyti.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum