Hoppa yfir valmynd
6. október 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til námsefnisgerðar á framhaldsskólastigi

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum greinum á framhaldsskólastigi.

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki til námsefnisgerðar í bóklegum og verklegum greinum á framhaldsskólastigi. Heimilt er skv. reglum um úthlutun að verja allt að fimmtungi heildarúthlutunar til að efla ákveðin svið.

Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyti, námsefnisnefnd, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 6. nóvember 2006. Sækja skal um á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti og í framhaldsskólum. Eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum