Hoppa yfir valmynd
12. október 2006 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Styrkur til handritarannsókna í Kaupmannahöfn

Ríkisstyrkur Árnastofnunar í Kaupmannahöfn fyrir árið 2007 er laus til umsóknar. Styrkurinn er veittur íslenskum ríkisborgurum til handritarannsókna í Den Arnamagnæanske Samling í Kaupmannahöfn.

Um styrkinn geta sótt fræðimenn, með eða án háskólamenntunar. Styrkurinn er þetta árið um 20.600 danskar krónur á mánuði, auk ferðakostnaðar, og má veita umsækjanda í allt að tólf mánuði. Að jafnaði er styrkurinn aðeins veittur í 1-3 mánuði.
Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði eftir næstu áramót.
Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum, og einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til ritara Den Arnamagnæanske Kommission, prófessor, dr. phil. Jonna Louis-Jensen, og senda til overassistent John Tietze, Den Arnamagnæanske Kommission, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, svo tímanlega að þær séu komnar viðtakanda í hendur fyrir kl. 12, 20. nóvember 2006.

Det Arnamagnæanske Stipendium.

Det Arnamagnæanske Legat, sem hefur það verkefni að veita íslenskum ríkisborgurum styrk til rannsókna í Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling (Árnasafni) eða í öðrum samsvarandi söfnum í Kaupmannahöfn, auglýsir hér með styrk fyrir árið 2007 lausan til umsóknar.
Styrkurinn sem er greiddur út í einu eða skipt í minni upphæðir er veittur námsmönnum og kandídötum sem hafa sýnt svo mikla þekkingu á norrænni eða íslenskri tungu, sögu eða bókmenntum, að af þeim megi vænta meiri afreka en almennt gerist í þessum greinum eða í einhverri þeirra.
Styrknum fylgir sú kvöð, að styrkþegi skal skila stuttri greinagerð um árangur sinn af rannsóknardvölinni. Greinargerðina skal senda sem fyrst eftir að dvölinni í Kaupmannahöfn lýkur og í síðasta lagi mánuði eftir næstu áramót.
Umsóknum eiga að fylgja helstu æviatriði (curriculum vitae), stutt greinargerð fyrir væntanlegu rannsóknarverkefni ásamt meðmælum, og einnig skal gera grein fyrir launagreiðslum á Íslandi meðan á dvölinni í Kaupmannahöfn stendur. Umsóknir ber að stíla til ritara Den Arnamagnæanske Kommission, prófessor, dr. phil. Jonna Louis-Jensen, og senda til overassistent John Tietze, Den Arnamagnæanske Kommission, Københavns Universitet, Njalsgade 136, DK-2300 København S, svo tímanlega að þær séu komnar viðtakanda í hendur fyrir kl. 12, 20. nóvember 2006.

Umsókn um báða styrkina.

Ef umsækjandi óskar þess að umsókn hans verði metin styrkhæf úr báðum þessum sjóðum skal hann geta þess. Ekki er ætlast til að tvær umsóknir séu skrifaðar, sín um hvorn styrkinn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum