Hoppa yfir valmynd
20. október 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fagstöður hjá UNESCO fyrir ungt fólk

Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur boðið þeim aðildarlöndum, sem eiga engan eða fáa starfsmenn hjá stofnuninni, að senda allt að 12 umsóknir frá ungu fólki um sérstakar fagstöður í höfuðstöðvunum í París.

Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur boðið þeim aðildarlöndum, sem eiga engan eða fáa starfsmenn hjá stofnuninni, að senda allt að 12 umsóknir frá ungu fólki um sérstakar fagstöður í höfuðstöðvunum í París. Þetta er liður í því að jafna landfræðilega dreifingu starfsfólks, auka hlut kvenna og auka stöðugleika í starfsliðinu.

Umsækjendur þurfa m.a. að uppfylla eftirtalin skilyrði:

  • vera yngri en 30 ára 1. maí 2006
  • hafa háskólagráðu á sviði: menntunar, vatnafræði, félagsvísinda, menningar, upplýsingafræði eða fjármála (nokkur sérsvið eru nefnd frekar)
  • hafa mjög gott vald á ensku eða frönsku sem eru vinnumál stofnunarinnar. Færni í báðum tungumálum er kostur.

Sækja þarf um á sérstökum umsóknareyðublöðum sem fást hjá íslensku UNESCO-nefndinni. Umsóknarfrestur til íslensku UNESCO-nefndarinnar er 1. desember nk.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Helgadóttir, ritari íslensku UNESCO-nefndarinnar í síma 545 9500 eða á netfanginu: [email protected].

Frekari upplýsingar um UNESCO eru að finna á vef stofnunarinnar.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum